04. Sep, 2010 - 03:04
Dóttirin - Sonurinn - Jóinn - OldBlogg 
Leit 
Tenglar á greinar:
Bullet1 Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla. | Bullet1 Neyðarkall eða bara neyðarlegt...... | Bullet1 Búin í hestaferð og á leið í veiðiferð. | Bullet1 Síðustu vikur í máli og myndum | Bullet1 Ok tölum um fótbolta... | Bullet1 Ég er á lífi :o) | Bullet1 Bloggdrottning ársins 2007 | Bullet1 Eurovision og fleira | Bullet1 Miðvikudagur 02.04.08 | Bullet1 Föstudagur 28.03.08 | Bullet1 Sjálfsvorkunnarblogg... | Bullet1 Þriðjudagur 11.03.08 | Bullet1 Föstudagur 29.02.08 | Bullet1 Miðvikudagur 27.02.2008 | Bullet1 Skóli og hokkímót | Bullet1 Lærdómur, veiðar og skautar. | Bullet1 Komið út úr prófi nr 2 :o) | Bullet1 Loksins myndir frá Þýskalandi | Bullet1 Sprengidagur | Bullet1 Síðasta vika janúar

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.
happy2009.jpg


Þá er komið nýtt ár sem gaman verður að fást við.  Ég er að rifja upp í rólegheitum hvað ég gerði á árinu 2008 og skelli því hérna inn í máli og myndum von bráðar.  Mig langaði bara að óska öllum gleðiðlegs árs og setja inn smá texta sem minnir okkur á að það sem skiptir máli fæst ekki fyrir peninga.   Það er og hefur alltaf verið mín trú að besta gjöfin er að gefa af sjálfum.......Ok og líka súkkulaði.  :o)

Vonandi eigið þið öll hamingjuríkt ár í vændum sem verður fullt af ævintýrum.

    Lesa meira.../Athugasemdir?    Skrifað  Fimmtudagur, 01. Janúar, 2009    Höfundur: Lindan    182  lesendur
image
 Neyðarkall eða bara neyðarlegt......
haust_08_194.jpg
Ómar Snær, Ástrós Harpa og hvolpurinn Eygló

Jæja ég ætla ekki einu sinni að afsaka hvað ég skrifa stopult hérna á mína eigin síðu :o)
Ekki það að það hafi ekki verið nóg að gera hérna hjá okkur í Holtagötunni. 2 börn, hvolpur, full vinna og háskólanám......allt að gerast hérna.
3 vikur í prófatörn og þá er um að gera að fara að finna sér allt annað en lestur að gera. hehe....
Ég þreif örugglega eldhússkápana í síðustu prófatörn. Talandi um próf....það er einmitt eitt fjármálapróf í dag og hvað er ég að gera? Blogga!!

Þrátt fyrir annir þá gengur lífið áfram sinn vanagang með sínum hæðum og lægðum. Vangaveltum um hvað skal gera i framtíðinni og hvort að ég sé á réttri braut. Hvort að það sé ekki örugglega satt að kaffi og súkkulaði eru heilsubætandi. Já og hvort að "karlinn á efri hæðinni" sé ekki að verða búinn með djókana sína ;-)

    Lesa meira.../  1 athugasemdir    Skrifað  Sunnudagur, 16. Nóvember, 2008    Höfundur: Lindan    183  lesendur
image
Búin í hestaferð og á leið í veiðiferð.
juli_102.jpg
Ómar að æfa sig á hestbaki. :o)

Sumarfríið byrjaði um hádegi 28. júlí og það er búið að vera nóg að gera.  Ég skellti mér í hestaferð með Pólarhestum í tæpa viku.  Ferðin var geðveik og ég vona að ég fái tækifæri til að fara aftur í svona ferð.  Ég tók slatta af myndum sem má sjá hér.  

Ég er að græja mig af stað í veiðiferð í Hofsá í Vopnafirði og hlakka mikið til.  
Vildi bara láta vita að ég væri sprell lifandi og er að njóta lífsins á fullu.
Gef mér tíma í lengra blogg eftir helgina, ekki vera feimin við að skoða myndirnar úr hestaferðinni.

    Athugasemdir?    Skrifað  Fimmtudagur, 07. Ágúst, 2008    Höfundur: Lindan    189  lesendur
image
 Síðustu vikur í máli og myndum
Skvsurnar_vi_rbakkann.jpg
Við skvísurnar við árbakka Reykjadalsár.

Það má blogga lítið yfir sumarið.   Ekki að það sé eitthvað minna um að vera heldur gef ég mér bara minni tíma til skrifa hérna. 
Sumarfríið byrjar 29. júlí og það verður sko nóg að gera þar til skólinn byrjar 21. ágúst.  *hlakki til* :o)   Bara 6 vinnudagar eftir.

Hendi inn nokkrum myndum úr lífi okkar hérna í Holtagötunni síðustu vikurnar.


      2 athugasemdir    Skrifað  Föstudagur, 21. Júlí, 2000    Höfundur: Lindan    329  lesendur
image
Ok tölum um fótbolta...
ronaldo.jpg
Klárlega flottasti leikmaðurinn....

Ég hef rosalega gaman af því að horfa á fótbolta, sérstaklega þegar um stórmót er að ræða.  Ég held alltaf með Hollendingum en á nú ekki von á að þeir verði evrópumeistarar að þessu sinni.  
Það er veðmál í gangi hérna í vinnunni og ég spáði Ítölum sigri en ég er ansi hrædd um að ég tapi því veðmáli.    Ég lagði ekki lífið undir svo að þetta er nú í góðu lagi.

En tölum aðeins um fótbolta eins og konur tala um fótbolta.  Hverjir eru sætasta liðið?  Flottasti leikmaðurinn?   Flottustu lærin? 
Ronaldo er klárlega flottasti leikmaðurinn.   Portúgalska liðið skorar hátt sem sætasta liðið en þar koma reyndar Sviss, Holland, Svíþjóð Austurríki líka til greina.  Ítalarnir eru bara ekki með þetta í ár.   Reyndar finnst mér Alessandro Del Piero alltaf flottur en hvað er málið með hárið á honum í þessari keppni??  Hann tapaði nokkrum stigum á þessari klippingu.
Set inn myndir hérna að neðan svo þið getið bara metið þetta sjálf.
    Athugasemdir?    Skrifað  Þriðjudagur, 13. Júní, 2000    Höfundur: Lindan    322  lesendur
image
 Ég er á lífi :o)
veidilinda.jpg
Ein veiðimynd til að minna mig á að ég MÁ byrja að veiða.

Jæja þá eru prófin löngu búin og ég búin að fá að vita að ég náði þeim öllum.  Á reyndar eftir að fá fyrir eitt verkefni en það hækkar bara loka einkunnina svo að ég er sátt.   Ég er mjög ánægð með að hafa drifið mig í skólann og það kemur skemmtilega á óvart að ég get vel lært.  Hlakka bara til að byrja aftur í haust og takast á við ný og spennandi fög.

Ég ákvað að snerta ekki veiðidótið fyrr en eftir prófin og náði að standa við það.  Verð þó að viðurkenna að ég er komin með mikinn fiðring og verð bara að fara að komast í veiði.   Hnýtingakvöld í næstu viku en það þarf að bæta í boxin eftir síðasta sumar.  


    Lesa meira.../Athugasemdir?    Skrifað  Laugardagur, 27. Maí, 2000    Höfundur: Lindan    245  lesendur
image
Bloggdrottning ársins 2007
Bloggdrottningin.jpg

Aha, óje.....
Ég hef nú verið kölluð ýmislegt en aldrei áður drottning og það á alheimsvefnum. 
Þessi litla "frétt" kom mér skemmtilega á óvart en mun ekki hafa önnur áhrif á framtíð mína.  hehe..
Krúttlegt barasta.

Ég bið æsta aðdáendur drottningarinnar um að sýna þolinmæði næstu 3 vikurnar en ég er að lesa undir próf og leggja lokahönd á síðustu skilaverkefni vetrarins.  Aðdáenda meilum verður svarað eftir 19. maí. 


    Lesa meira.../  2 athugasemdir    Skrifað  Fimmtudagur, 01. Maí, 2008    Höfundur: Lindan    281  lesendur
image
 Eurovision og fleira
oddsskard.jpg
Þarna verð ég um helgina

Ætla að byrja á því að óska Hrönn og Gunna til hamingju með soninn sem fæddist 10.04.2008 og fékk nafnið Ari Hafþór.
Ég sýndi Ástrós mynd af Ara litla og eftir smá stund sagði hún "mamma ertu of gömul til að eignast börn?" Ég kváði nú en sagði svo já. "Ok gott. Ég vil alveg lítinn bróður en svo verður hann stór og þá verður hann vandamál"
Hehehe.... Hún er greinilega búin að pæla eitthvað í þessu.

Annað má er nýja júróvisionmyndbandið sem þið getið séð hér þetta er tær snilld.

    Lesa meira.../  3 athugasemdir    Skrifað  Mánudagur, 17. Apríl, 2000    Höfundur: Lindan    233  lesendur
image
Miðvikudagur 02.04.08
logga.jpg
Lögreglan á Akureyri

Jæja nú fer vorið að koma.  Jibbííí....
Sumarfrí í ágúst og ég er að spá í að skella mér í bústað í eina viku eða svo.   Það eru engar utanlandsferðir planaðar í ár en ég þreytist ekki á því að skoða landið okkar.  Krakkarnir hafa enn þá gaman af því að rúnta um landið með mömmu sinni og skoða spennandi staði.  Fara skógarferðir, skoða fossa, tjalda, grilla og veiða í  hér og þar.    Ég er sannfærð um að sumarið verður sérstaklega gott.

Það er alltaf nóg um að vera í Holtagötunni og í gær þurfti ég lögregluaðstoð vegna Ómars Snæs...

    Lesa meira.../Athugasemdir?    Skrifað  Miðvikudagur, 02. Apríl, 2008    Höfundur: Lindan    295  lesendur
image
 Föstudagur 28.03.08
hjolarass.jpg
Fínasti hjólarass ;-)

Jæja þá er þessi mánuður að verða búinn.... Hvenær má byrja að undirbúa jólin??  hehe...
Sumarfríið er að verða klárt en það kemur endanlega í ljós á mánudaginn hvort ég fái frí akkúrat þá daga sem ég sótti um.

Það er tvennt sem mig dauðlangar í í dag.  Hjól og að búa í sveit.   Ef einhver á hjól sem safnar ryki þá skal ég viðra það reglulega þegar fer að vora aðeins meira.   Ég veit ekki hvort og hvernig gengur að flytja í sveit en ég ætla samt að halda áfram að eiga mér þann draum.  Þó að þið vitið um bónda sem safnar ryki þá hef ég ekki áhuga á að vita af því.  :o)

    Lesa meira.../  2 athugasemdir    Skrifað  Föstudagur, 28. Mars, 2008    Höfundur: Lindan    286  lesendur
image
Sjálfsvorkunnarblogg...
fever.jpg
Sjálfsmynd ;)

Arghhh ég mátti sko ekki vera að því að verða veik akkúrat núna.  En það er ekki eins og maður ráði þessu.  Við erum að tala um að hitinn er kominn niður í tæplega 39 stiga hita núna og mér dettur í hug að það sé ekki að fara neitt sérlega vel í mig að þurfa að skjótast út annað slagið til að redda börnunum.

Hvar er mamma???  Dísess hvað ég finn mikið fyrir því núna að hún skuli búa hinu megin á landinu.  Kannski er mér að hegnast fyrir það sem ég sagði um karlmenn í síðustu færslu,  að þeir væru bara til eins.   Ég væri alveg til í að hafa einn til að hjúkra mér núna,  græja krakkana í og úr skólanum og á íþróttaæfingar.  Elda mat fyrir okkur og segja mér að ég sé ekki alveg eins ljót og mér líður. 
Áhugasamir vinsamlegast sendið mér email. 

    Lesa meira.../  1 athugasemdir    Skrifað  Fimmtudagur, 13. Mars, 2008    Höfundur: Lindan    309  lesendur
image
 Þriðjudagur 11.03.08
cole.jpg

Ónefnd vinkona mín sem er búsett í þýskalandi er búin að kvarta  undan skorti á færslum hérna inni.  Gaman að einhver tekur eftir því þegar ég þegi. ;-)
Það er alltaf nóg að gera (eins og rispuð plata með þetta)   skóli í vikunni, hokkímót um helgina og svo námskeið í borginni í framhaldi af því.   Alltaf gaman að hafa nóg að gera. :o)
Matarboð í Kef á sunnud, 2 fermingar um páskana og svo ætla ég að vera með 1 aukabarn í heimsókn yfir páskana.  Hlakka mikið til :o)

En í bloggfærslu dagsins ætla ég nú að fjalla um grein sem ég las á mbl.is um kynlífsbindindi sem refsingu...... Dahhh

    Lesa meira.../Athugasemdir?    Skrifað  Laugardagur, 11. Mars, 2000    Höfundur: Lindan    312  lesendur
image
Föstudagur 29.02.08
annapihl.jpg
Nýjasta vinkona mín Anna Pihl

Það er nú ekki hægt annað en að blogga í dag í tilefni hlaupaársdagsins.
Frábært að hafa lengra ár í ár því þá er ég lengur 36 :-)

Ég var á frábærri veiðikynningu í gær þar sem var fjallað um ólíka nálgun á sömu veiðistaðina.  Mjög áhugavert og skemmtilegt.   Mig dreymdi svo auðvitað ekkert nema veiði í alla nótt og að ég ætti leyfi í á sem mig langar rosa mikið að prófa.  Leyfið á ég samkvæmt draumnum þann 16. júní. heheh... Góður draumur mar....

Mér var bent á það 3x í gær hvað ég líktist þessari konu hérna við hliðina.  Hún leikur í dönskum lögguþáttum sem sýndir eru á RUV á fimmtudögum um kl 23.  Ég horfði í gær í fyrsta sinn til að sjá þessa blessuðu konu og ég skil hvað það er sem fólki þykir líkt...... Við eigum báðar handjárn ;-) hehe.... En án gríns þá sé ég alveg hvað fólk er að meina.  

    Lesa meira.../Athugasemdir?    Skrifað  Föstudagur, 29. Febrúar, 2008    Höfundur: Lindan    294  lesendur
image
 Miðvikudagur 27.02.2008
bjornbjarna.jpg

Ég þarf að taka smá Björn Bjarnason á síðuna mína en það er eitthvað rugl á kerfinu þannig að dagsetningarnar eru kolvitlausar. Allt í einu komið árið 2000 aftur. Mér skilst að þetta sé vegna þess að kerfið telji bara 3 ár og svo þurfi að gera eitthvað blahhhhh.... Já fínt...Ég er þá búin að skrifa hér í 3 ár og þar áður í ca 2 ár á blogspot síðuna mína. Mjög gott.....
Ég veit ekki annað en að það sé í vinnslu að laga þetta en þetta truflar mig ekki neitt og ég get ekki sagt að þetta hafi breytt neinu í mínu daglega lífi. :o) Þetta er það sem myndi flokkast undir lúxus "vandamál".

Hmmm fín hugmynd að flokka "vandamálin" svona til að tékka hvort að hégóminn sé að fara með mann.

    Lesa meira.../  2 athugasemdir    Skrifað  Sunnudagur, 27. Febrúar, 2000    Höfundur: Lindan    256  lesendur
image
Skóli og hokkímót
Hringrasarmotid_042.jpg

Nóg að gera um helgina.  Ég var í skólanum fim-lau og var svo restina af helginni inní skautahöll.  Ómar Snær var að keppa á hokkímóti og gekk vel. 
Ég náði mér í kvef og hita um helgina og var heima í dag.  Er eitthvað andlaus en ætla að henda inn nokkrum myndum úr skautahöllinni. 
    Athugasemdir?    Skrifað  Laugardagur, 26. Febrúar, 2000    Höfundur: Lindan    262  lesendur
image
 Lærdómur, veiðar og skautar.
veidilinda.jpg
Ég við Litlá í ágúst í fyrra.

Ég er búin að vera svo upptekin og hugmyndasnauð síðustu daga að ég hef bara ekkert skrifað of lengi. Skrifaði samt 2x hérna í síðustu viku.
Ég er búin að vera á flugukastsnámskeiði síðustu 2 laugardagsmorgna og er komin með veiðispenning í mig. Það eru samt rúmir 3 mánuðir í fyrstu veiðiferðina mína. Ohhh of langt.....
Ég ætti þá svo sem að geta nýtt tímann í að læra og ekki veitir af. Ég finn að það vantar mikið uppá athyglina þegar kemur að því að vinna sum verkefnin.

Nei Inda Hrönn ég er ekki með athyglisbrest bara óþolinmóð. :o)

    Lesa meira.../  2 athugasemdir    Skrifað  Föstudagur, 18. Febrúar, 2000    Höfundur: Lindan    310  lesendur
image
Komið út úr prófi nr 2 :o)
nine.jpg

Jeijjj vúhú og allt það.....
Jebb greinilega á uppleið í stjórnun :o)

Ég get eiginlega lofað að ég verð ekki svona ánægð þegar ég fæ út úr fjárhagsbókhaldsverkefninu sem ég á að skila í næstu viku.  Shit hvað er langt síðan ég lærði eitthvað í bókhaldi.  Jæja ég vona bara að ég nái þessu öllu í maí.

    Athugasemdir?    Skrifað  Þriðjudagur, 12. Febrúar, 2008    Höfundur: Lindan    264  lesendur
image
 Loksins myndir frá Þýskalandi
Picture_007.jpg

Tölvu og myndavélaskipti hafa haft áhrif á hvað ég hef sett lítið af myndum hérna inn undanfarnar vikur. Jólamyndirnar eru reyndar enn í gömlu myndavélinni en það stendur til bóta. :-)

Eitt af því fyrsta sem ég féll fyrir þegar ég kom fyrst til Þýskalands voru húsin þar.  Eld gömul og krúttleg.   Í Wolfratshausen er fuuuullt af gömlum og flottum húsum og hér til hliðar er t.d eitt.


      2 athugasemdir    Skrifað  Mánudagur, 07. Febrúar, 2000    Höfundur: Lindan    366  lesendur
image
Sprengidagur
salkjotogbaunir.jpg
Nammi namm

Vá hvað ég ætla að borða yfir mig af saltkjöti og baunum í hádeginu :o) Eftir daginn í dag byrjar svo heilsuátak eða svona kannski meira nammibindindi.
Við fengum frábæran fyrirlestur hérna í vinnunni í morgun um heilsu og hollustu og um að gera að nýta sér þann fróðleik sem start.  Við notum þriðjudagsmorgna til að borða saman morgunmat og fræðast hérna í vinnunni og í morgun fengum við til okkar einkaþjálfara og lífsstíls-þerapista :o)  Það eru 5 vikur í árshátíð svo það er um að gera að byrja að undirbúa sig. *blikkblikk*

    Lesa meira.../Athugasemdir?    Skrifað  Laugardagur, 05. Febrúar, 2000    Höfundur: Lindan    294  lesendur
image
 Síðasta vika janúar
happyfeet.jpg
Svona líður mér akkúrat núna. Hamingjusöm með mig og mína.


Ég var búin að hlakka þvílíkt til að fá loksins almennilegt óveður hérna í gær en ekkert gerðist. Í nótt átti allt að gerast en svo bara varð ekkert úr þessu.  Það er svo kósý að fá óveður svona einu sinni á vetri eða svo.    Gengur kannski betur næst.

Ég er enn þá tölvulaus heima en á von á að finna mér tölvu í vikunni. Þá get ég loksins farið að setja inn jólamyndir og eitthvað fleira dúllerí.  Svo geri ég nú ráð fyrir að við fáum slatta af skemmtilegum verkefnum í skólanum í vikunni sem ég þarf að leysa á netinu. 

    Lesa meira.../Athugasemdir?    Skrifað  Mánudagur, 28. Janúar, 2008    Höfundur: Lindan    303  lesendur
image


 Prenthæf síða Prenthæf síða
 _BOTLINKNAME1 | _BOTLINKNAME2 | _BOTLINKNAME3 

Allt ritað efni síðunnar ásamt ljósmyndum er varið
höfundarréttarlögum og er með öllu óheimilt að nota
það í heimildarleysi.

© 1990- 2005 NeiDesign - linda "at" rjoma.is



Fatal error: Call to a member function Execute() on a non-object in /var/customers/webs/norm/linda/includes/pnSession.php on line 401